Ekki taka sénsinn! Vertu á góðum dekkjum
Dekk á bílum gegna mikilvægarahlutverki en við flest gerum okkur grein fyrir. Dekkin eru tæknilega flókin smíð og mikil vísindi, rannsóknir og þróunarvinna liggur þar að baki. Dekkin vinna með fjöðrunarkerfi bílsins, og er hlutverk þeirra að tryggja gott veggrip svo bíllinn renni ekki til og valdi í verstafalli slysi. Til að tryggja gott veggrip er notuð gúmmíblanda og munstur sem hæfir aðstæðum sem dekkið er ætlað til. Við ætlum þó ekki að fara djúpt í þessi fræði hér, heldur útskýra þessa megin þætti á einfaldan hátt í 5 liðum hér að neðan.
1.) Hliðarnar fjaðra, eiginleiki þeirra er misjafn en alment eru hærri hliðar með meira fjöðrunarsvið. Fjöðrunarkerfi bílsins er hannað með tilliti til dekkjanna sem undir honum eiga að vera og þeirra eiginleika sem ökutækið á að búa yfir. T.D: Vörubíll, jeppi eða sportbíll hafa ólík hlutverk og þurfa mjög ólíka hjólbarða til að standast hlutverk sitt með sóma.
2.) í vetrardekkjum er nöglum komið fyrir með þeim hætti að þeir dreyfist á gripflötinn svo þeir spóli ekki allir í sama farinu.
3.) Dekk sem hafa lítið núningsviðnám spara eldsneyti.
4.) Gúmmíblandan ásamt fína munstrinu sjá um gripið sjálft í venjulegum vega akstri.
5. ) Stóra munstrið sér um að veita vatni og krapa undan dekkinu svo bíllinn fari ekki að fljóta og missa grip. Stóra munstrið veitir einnig grip við erfiðari aðstæður í snjó sandi og drullu.

Loftþrýstingur
Eiginleikar dekkja og vinnugeta þeirra nýtist best við réttan loftþrýsting. Farðu vel með dekkin þín og auktu öryggi., fylgstu með loftþrýstingi dekkjana.
1.) Réttur loftþrýstingur tryggir eðlilega endingu dekkjana og viðheldur aksturseiginleikum.
2.) Of lítill loftþrýstingur veldur hröðu kantsliti að innan og utan.
3.) Of mikill loftþrýstingur veldur hröðu sliti á miðju og minnkar grip.
4.) Röng hjólastilling veldur lakari aksturseiginleikum slítur kanti að utan eða innan þrátt fyrir réttan loftþrýsting.









