Skip to main content
07:45 - 12:05 & 12:45 - 17:00 mán - fim
|
07:45 - 12:05 & 12:45 - 16:00 fös
+354 565 1090
Flatahraun 7 Kort

Dekkjahótel

Mynd
Dekkjahótel

Sparaðu plássið í geymslunni og geymdu dekkin hjá okkur. Við bjóðum viðskiptavinum okkar að geyma dekk og felgur á dekkjahótelinu okkar gegn sanngjörnu gjaldi.



Skilmálar um dekkjageymslu:

BJB-motors býður viðskiptavinum sínum upp á geymslu dekkja. Geymslugjald er greitt fyrirfram og gildir fram að næstu reglulegu árstíðaskiptum (hámark hálft ár), nema um annað sé sérstaklega samið.

Viðskiptavinur ber ábyrgð á að sækja dekk sín innan hæfilegs tíma að loknum samningstíma. Óski viðskiptavinur eftir áframhaldandi geymslu ber honum að láta starfsmenn BJB-motors vita áður en geymslutímabili lýkur.

Dekk sem ekki hafa verið sótt eða greitt hefur verið fyrir áframhaldandi geymslu á innan 12 mánaða frá síðustu þjónustu eða lokum síðasta geymslutímabils teljast ósótt. Í slíkum tilvikum er Pústþjónustu BJB ehf. heimilt, án frekari fyrirvara, að ráðstafa dekkjunum, þar á meðal að selja þau upp í áfallinn kostnað eða farga þeim.

Pústþjónusta BJB ehf. leitast við að tryggja örugga og viðeigandi geymslu dekkja og felgna eftir því sem við á en ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða vegna óviðráðanlegra atvika, svo sem eldsvoða, náttúruhamfara eða annarra atvika sem teljast ófyrirséð (e. force majeure).

Afhending dekkja á dekkjahótel staðfestir að viðskiptavinur hefur kynnt sér og samþykkt framangreinda skilmála.