Við leggjum okkur fram við að styðja við uppbyggingu og framgang forvarna-, umhverfis-, íþrótta- og menningarmála.
Öllum beiðnum er svarað og reynt er eftir fremsta megni að gera það innan þriggja vikna frá styrkarbeiðni.
Styrktarbeiðnir skal senda með tölvupósti á styrkur@bjb.is
Taka þarf fram:
- Nafn þess sem sækir um styrkinn
- Nafn þess sem sækja á um styrkinn fyrir ef hann er annar en sá sem sækir um styrkinn.
- Netfang
- Síma
- Fjárhæð sem óskað er
- Tegund styrkjar; svo sem vegna íþrótta eða menningarmála.
- Lýsing á verkefni
- Rökstuðningur styrkarbeiðni
- Einnig skal tekið fram hvort beiðni sé styrktarlína, auglýsingabeiðni, logo eða annað.